Brúarfljót 2, 270 Mosfellsbær
Tilboð
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
0 herb.
190 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2020
Brunabótamat
68.650.000
Fasteignamat
65.700.000

Atvinnueign kynnir til sölu: 190,2 fm iðnaðarhúsnæði við Brúarfljót í Mosfellsbæ.

Birt stærð bilsins er 127,5 fm gólflötur með 62,7 fm millilofti, samtals 190,2 fm. Seljandi er að ganga frá uppsetningu á millilofti. 

Burðarvirki eru forsteyptar einingar frá BM Vallá, einangraðar utanfrá með 7 cm veðurkápu með dökkri klæðningu. Þak er með þaksperrum úr límtré og þakklæðning yleiningar með steinullareinangrun.
Stórar innkeyrsludyr 4,0 m x 4,2 m, með rafmagnsmótor.
Frí lofthæð er frá 6,3 m til 8,5 m áður en sett hefur verið upp milliloft. Gólf eru vélslípuð og ómáluð með niðurföllum. Gluggar og gönguhurðarkarmar eru timbur að innan og ál að utan. Kaffiaðstaða er afstúkuð með innréttingu og vaski. Snyrting með klósetti, handlaug og sturtuklefa, niðurfall í gólfi.
Þriggja fasa rafmagn er í bilinu. Hitablásari til upphitunar, lagnagrind með varmaskipti fyrir neysluvatn, frádráttarmælar eru bæði fyrir heitt og kalt vatn. Tengt er fyrir snjóbræðslu fyrir framan innkeyrslu. Bílaplan var malbikað sumarið 2022 og gott sameiginlegt athafnasvæði er á lóðinni.

Allar nánari upplýsingar veita:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, í síma 847 7700 eða [email protected]
Halldór Már Sverrisson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari í síma 898 5599 eða [email protected]

Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueignar ehf, www.atvinnueign.is
   
                   - Atvinnueignir eru okkar fag - 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign og greiðist við kaupasamning
:
-Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða og eignarhluti er 50% eða hærri.
-Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
-Umsýslugjald fasteignasölu kr. 74.400- með vsk.
-Annar kostnaður t.d. skilyrt veðleyfi / skjalagerð kr: 18.600.- með vsk.
-Lántökugjald vegna veðlána og eru gjöld þessi mismunandi  eftir lánastofnunum, sjá nánar á vefsíðu viðeigandi stofnunar.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Því skorar Atvinnueign fasteignasala á alla væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.