Atvinnueign kynnir til leigu 345 fm glæsilegt skrifstofuhúsnæði við Borgartún 25.Bjart og glæsilegt skrifstofurými á 6. hæð í Borgartúni með einstöku útsýni, mögulegt að aðlaga rýmið á einfaldan hátt að þörfum leigutaka. Góð eldhús- og kaffiaðstaða er í rýminu ásamt rúmgóðum fundarherbergjum.
Skrifstofurýmið er einstaklega bjart og býður upp á stórbrotið útsýni, óhindrað til sjávar og fjalla. Frábær staðsetning í einu helsta viðskiptaumhverfi Reykjavíkur með afbragðs almenningssamgöngum, mikið af veitingastöðum og öll þjónusta í nágrenninu.
Allar nánari upplýsingar veitir:Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, í síma
847-7700 [email protected] Heimasíða ATVINNUEIGN fasteignamiðlunar. - Atvinnueignir eru okkar fag -