Atvinnueign kynnir heila húseign við Þverholt 11, Listaháskóli Íslands er í húsnæðinu í dag og hefur nýtt það undir sýna skólastarfsemi, húsnæðið verður laust þann 1. ágúst 2024.Húsið er 4.127 m², kjallari (bílageymsla/geymslur) og sex hæðir. Á teikningum frá 2008 var gert ráð fyrir 9 bílastæðum í kjallara en það rými notar skólinn í dag fyrir tvo kennslusali.
Húsið er mjög hrátt að innan, 1. - 4. hæð eru stórir óinnréttaðir salir og tvær efstu hæðirnar voru á sínum tíma steyptar upp sem lúxus íbúðir á tveimur hæðum en þar er einnig allt óinnréttað.
Það eru 14 bílastæði eru fyrir framan húsið.
Eign sem býður uppá mikla möguleika.Allar nánari upplýsingar veitir:
Halldór Már Sverrisso, löggiltur fasteignasali í síma 898-5599 eða á tölvupósti [email protected]
Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf, www.atvinnueign.is
- Atvinnueignir eru okkar fag -