Atvinnueignir kynna til leigu: Glæsilegt skrifstofurými að Guðrúnartúni 8 í Kaaber húsinu. Um er að ræða tvö rými í risi sem samtals eru 321,30 fm að stærð.
Húsnæðið er laust til afhendingar við undirritun leigusamnings. Leigurýmið er á þriðju hæð, í risinu í þessu glæsilega húsi, Kaaber húsinu sem hefur verið innréttað sem skrifstofuhúsnæði á þremur hæðum auk kjallara.
Risinu er skipt í tvö megin rými, gengið er inn frá miðju um fallegt stigahús.
Í báðum rýmum er útgengi út á suðursvalir og þar eru bjartir þakgluggar sem eru opnanlegir.
Í „vestur“ rýminu sem eru af stúkuð með gleri, tvö fundar- eða skrifstofuherbergi. Rúmgóður salur er fyrir framan.
Í „austur“ rýminu er einnig stúkað af með gleri, rúmgott rými í enda og svo salur fyrir framan þar sem er einnig skrifstofurými við inngöngu dyr.
Eldhúsaðstaða er í báðum rýmum og undirstrikar það möguleikann á að skipta húsnæðinu upp.
Eins og fyrr segir er húsinæðið í risi og hluti þess er því undir súð, þar af leiðandi er gólfflötur stærri en fermetratalan segir til um.
Sameiginlegir inngangar eru bæði að framan verðu og frá porti á bakvið hús.
Í Kjallara eru sameiginleg rými þar sem er eldhús og stór móttaka.
Frábær staðsetning við stofnbraut og í göngufæri við miðborgina, húsnæði sem er þekkt í menningu Reykjavíkur og húsið er fallegt með mikla sögu.
Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir: Halldór Már Sverrisson, löggiltur fasteignasali í síma
898 5599,
[email protected]Evert Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í síma
823 3022,
[email protected]Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf, www.atvinnueign.is
- Atvinnueignir eru okkar fag -