Bæjarflöt 9, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
98.000.000 Kr.
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
4 herb.
231 m2
98.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2019
Brunabótamat
88.150.000
Fasteignamat
65.250.000

Atvinnueign kynnir til sölu: Nýlegt, glæsilegt steinsteypt atvinnuhúsnæði við Bæjarflöt 9 í Grafarvogi. (Möguleiki að kaupa tvö bil hlið við hlið, saltals 463 fm).
Atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum sem býður upp á mikla möguleika varðandi notkun og innréttingu en húsnæðið er fullbúið. Laust nú þegar. 
Fullbúin bílastæði og góð aðkoma. Um er að ræða 231,5 fm. skv. fasteignaskrá Þjóðskrár í steyptu húsi frá 2019, eignarhlutur 01-0103. 
Eignin er á tveimur hæðum. Fyrsta hæð er 120 fm. að grunnfleti, flísalögð með góðri lýsingu, lofthæð ca. 4,2 metrar, tvennar innkeyrsluhurðir; að framan 3,9 metra há og innkeyrsluhurð af aftan 3,0 metra há. Innréttað er rúmgott baðherbergi á neðri hæð, flísalagt með salerni og handlaug, rými fyrir sturtuklefa ef vill.
Efri hæðin er; 111,5 fm. Góður stigagangur er á milli hæða sem aðskilur rýmin/hæðirnar. Efri hæðin er innréttuð eins og teikningar gera ráð fyrir, tvö herbergi/rými eru í norður enda, annað hugsað sem kaffistofa. Þá er innréttað baðherbergi, flísalagt með handlaug og salerni en mögulegt er að koma þar fyrir sturtuklefa. Þvottaaðstað/geymsla. Restin af efri hæðinni er í einu, opnu alrými en auðvelt er að skipta því frekar upp með léttum veggjum. Efri hæðin er björt  með góðum gluggum á tvo vegu og gefur möguleika á ýmiskonar nýtingu svo sem sem skrifstofur eða önnur sameiginleg rými.
Staðsetningin er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, mjög góð aðkoma og gegnumkeyrsla býður upp á ýmsa notkunar möguleika.  Sveigjanlegt skipulag innra rýmis og góð bílastæði.

Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir:
Halldór Már Sverrisson löggiltur fasteignasali og leigumiðlari í síma 898-5599 eða [email protected]

Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu atvinnueign.is

- Atvinnueignir eru okkar fag -
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.