Atvinnueign kynnir til leigu: 110 fm verslunarrrými í Hafnarstræti 17-19 í miðborg Reykjavíkur.
Um er að ræða frábært verslunarrými í glæsilegri byggingu sem er staðsett í hjarta Reykjavíkur en byggingin er eitt af kennileitum borgarinnar. Rýmið er mjög bjart og býður upp á mikinn sýnileika.
Laust eftir samkomulagi. VSK bætist við leiguverð. Rýmið er hluti af Hafnartorgssvæðinu en það hefur verið mikil uppbygging á svæðinu á síðustu árum. Hafnartorgssvæðið er nútímalegt borgarhverfi sem nær alveg frá Lækjartorgi og að Hörpu. Á svæðinu er blandað saman íbúðarhúsnæði, skrifstofum, hótelum, verslununum og þjónustu ásamt menningartengdri starfssemi.
Undir svæðinu alla leið að Hörpu er stærsti bílakjallari landsins sem fólk getur keyrt inn um á 3 mismunandi stöðum og gengið upp á mörgun stöðum, m.a. með lyftum og rúllustigum beint upp á göngugöturnar og verslunarsvæðin.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, í síma
847-7700 eða
[email protected] Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueignar ehf,
www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag –