Bæjarflöt 9, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
98.000.000 Kr.
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
2 herb.
231 m2
98.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2019
Brunabótamat
87.950.000
Fasteignamat
65.250.000

Atvinnueign ehf kynnir nýlegt, glæsilegt steinsteypt atvinnuhúsnæði til sölu eða leigu. (Möguleiki að kaupa tvö bil hlið við hlið, saltals 463 fm).
Atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum sem býður upp á mikla möguleika varðandi notkun og innréttingu en húsnæðið er fullbúið. Laust nú þegar.
Fullbúin bílastæði og góð aðkoma. Um er að ræða 231,5 fm. skv. fasteignaskrá Þjóðskrár í steyptu húsi frá 2019, eignarhlutur 01-0104. 
Eignin er á tveimur hæðum. Fyrsta hæð er 120 fm. að grunnfleti, flísalögð með góðri lýsingu, lofthæð ca 4,2 metrar, tvennar innkeyrsluhurðir; að framan 3,9 metra há og innkeyrsluhurð af aftan 3,0 metra há. Innréttað er rúmgott baðherbergi á neðri hæð, flísalagt með salerni og handlaug, rými fyrir sturtuklefa ef vill.
Efri hæðin er; 111,5 fm. Góður stigagangur er á milli hæða sem aðskilur rýmin/hæðirnar. Efri hæðin er innréttuð eins og teikningar gera ráð fyrir, tvö herbergi/rými eru í norður enda, annað hugsað sem kaffistofa. Þá er innréttað baðherbergi, flísalagt með handlaug og salerni en mögulegt er að koma þar fyrir sturtuklefa. Þvottaaðstað/geymsla. Restin af efri hæðinni er í einu, opnu alrými en auðvelt er að skipta því frekar upp með léttum veggjum. Efri hæðin er björt  með góðum gluggum á tvo vegu og gefur möguleika á ýmiskonar nýtingu svo sem sem skrifstofur eða önnur sameiginleg rými.
Staðsetningin er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, mjög góð aðkoma og gegnumkeyrsla býður upp á ýmsa notkunar möguleika.  Sveigjanlegt skipulag innra rýmis og góð bílastæði.

Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir:
Halldór Már Sverrisson viðskiptafræðingur, löggiltur fasteignasali og lögg. leigumiðlari í síma 898 5599 eða [email protected] 

Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf, www.atvinnueign.is

           - Atvinnueignir eru okkar fag -

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.