Atvinnueign kynnir Til leigu skrifstofuhæðir í sögufrægu húsnæði gömlu kassagerðarinnar sem nú hefur verið endurbyggt. Um er að ræða tvær skrifstofuhæðir samtals um 2.000 m² auk hlutdeildar í sameign á 2. og 3. hæð. Hægt er að skipta hæðum upp í minni einingar eins og sjá má á grunnmyndum. Sameignarfrágangi er lokið en hægt er að klæðskerasníða skrifstofur í samráði við leigutaka.
Aðgengi er gott af Sæbraut. Tveir stigakjarnar með lyftum veita gott aðgengi upp á hæðir. Til Norður er útsýni yfir Esju og höfnina. Til vesturs er útsýni yfir miðborg Reykjavíkur og strandlengju.
Lögð er áhersla að leigutakar á reitnum hafi sett sér umhverfisstefnu og markmið um að draga úr umhverfisáhrifum.
Allar nánari upplýsingar veitir:Ólafur Ingi Guðmundsson löggiltur fasteignasali og leigumiðlari í síma
847-7700 eða
[email protected]Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf,
www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag -