Atvinnueign kynnir til sölu: 190,2 fm iðnaðarhúsnæði við Brúarfljót í Mosfellsbæ.
Birt stærð bilsins er 127,5 fm gólflötur með möguleika á 62,7 fm geymslulofti, samtals 190,2 fm alls ef milliloft er gert. Skráð stærð bilsins hjá FMR er 190,2 fm með millillofti inniföldu en eftir er að setja það upp, burðarbitum hefur þó verið komið fyrir. Seljandi getur klárað milliloftið fyrir kaupanda ef óskað er eftir því fyrir auka greiðslu.
Burðarvirki eru forsteyptar einingar frá BM Vallá, einangraðar utanfrá með 7 cm veðurkápu með dökkri klæðningu. Þak er með þaksperrum úr límtré og þakklæðning yleiningar með steinullareinangrun.
Stórar innkeyrsludyr 4,0 m x 4,2 m, með rafmagnsmótor.
Frí lofthæð er frá 6,3 m til 8,5 m áður en sett hefur verið upp milliloft. Gólf eru vélslípuð og ómáluð með niðurföllum. Gluggar og gönguhurðarkarmar eru timbur að innan og ál að utan. Kaffiaðstaða er afstúkuð með innréttingu og vaski. Snyrting með klósetti, handlaug og sturtuklefa, niðurfall í gólfi.
Þriggja fasa rafmagn er í bilinu. Hitablásari til upphitunar, lagnagrind með varmaskipti fyrir neysluvatn, frádráttarmælar eru bæði fyrir heitt og kalt vatn. Tengt er fyrir snjóbræðslu fyrir framan innkeyrslu. Bílaplan var malbikað sumarið 2022 og gott sameiginlegt athafnasvæði er á lóðinni.
Allar nánari upplýsingar veita:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, í síma
847 7700 eða
[email protected]Halldór Már Sverrisson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari í síma
898 5599 eða
[email protected]Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueignar ehf,
www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign og greiðist við kaupasamning:
-Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða og eignarhluti er 50% eða hærri.
-Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
-Umsýslugjald fasteignasölu kr. 74.400- með vsk.
-Annar kostnaður t.d. skilyrt veðleyfi / skjalagerð kr: 18.600.- með vsk.
-Lántökugjald vegna veðlána og eru gjöld þessi mismunandi eftir lánastofnunum, sjá nánar á vefsíðu viðeigandi stofnunar.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Því skorar Atvinnueign fasteignasala á alla væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.