Atvinnueign kynnir til leigu: Í vinsæla skrifstofukjarna félagsins á 3. hæð að Skeifunni 19, beint á móti Pennanum, er laus ein skrifstofa. Skrifstofan er merkt nr.
5 á grunnmynd, samtals 35 fm. Þá losnar fljótlega skrifstofa
merkt nr. 8 á grunnmynd, skrifstofan er tæpir 67 fm. og skrifstofa nr. 3 á grunnmynd sem er 35 fm. Mikil eftirspurn hefur verið eftir minni skrifstofurýmum á svæðinu en á hæðinni eru samtals 11 skrifstofur. Allar skrifstofurnar eru með hlutdeild í tveimur fundarherbergjum á sömu hæð og eldhússaðstöðu. Skrifstofurnar eru frá tæplega 20 til tæplega 70 fm og snúa þrjár þeirra í suður og átta í norður. Skrifstofurnar eru leigðar án húsgagna en fundarherbergin eru fullinnréttuð og þá eru sömuleiðis setsvæði þar sem hægt er að hitta fleiri leigutaka hæðarinnar og koma á tengingum og samvinnu sé áhugi fyrir slíku.
Þá losnar í aprílmánuði tæplega 160 fm skrifstofurými á 4. hæð byggingar. Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir:Evert Guðmundsson, löggiltur fasteigna sali, í síma
823-3022 - [email protected]Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf, www.atvinnueign.is - Atvinnueignir er okkar fag -