Smiðshöfði 6, 110 Reykjavík (Árbær)
265.000.000 Kr.
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
0 herb.
873 m2
265.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1978
Brunabótamat
216.350.000
Fasteignamat
209.350.000

Atvinnueign kynnir: Til sölu 873,9 fm iðnaðarhúsnæði / lager með sex innkeyrsluhurðum að Smiðshöfða 6 í Reykjavík. 

Húsnæðið er á tveimur hæðum með viðbyggingu og millilofti á neðri hæð. Neðri hæð er að mestu með góðri lofthæð, millilofti og fjórum innkeyrsluhurðum. Viðbygging er með tveimur innkeyrsluhurðum.. Starfsmannaðstaða/kaffistofa, snyrting og skrifstofa eru inná stigagangi.  Á efri hæð eru skrifstofur/herbergi, eldhús og baðherbergi, allt í útleigu.

Stórt og mikið útisvæði og bílaplan fyrir framan húsnæðið. 

Stærðir á leiguteiningum: 
369 fm á 3. hæð.
290 fm. á jarðhæð og hluti af 2. hæð.
115 fm á jarðhæð og hluti af 2. hæð.
100 fm. kálfurinn á jarðhæð.

Hluti af rýminu er laus strax (iðnaðarrými, viðbygging og milliloft) en hluti er í útleigu (skrifstofur/herbergi efri hæð).

Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir:
Halldór Már Sverrisson lögg. fasteignasali og viðskiptafr. í síma 898-5599 eða [email protected]

Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueignar ehf, www.atvinnueign.is

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign og greiðist við kaupasamning:
-Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða og eignarhluti er 50% eða hærri.
-Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
-Umsýslugjald fasteignasölu samkvæmt verðskrá.
-Annar kostnaður t.d. skilyrt veðleyfi / skjalagerð kr: 15.000.- auk vsk.
-Lántökugjald vegna veðlána og eru gjöld þessi mismunandi  eftir lánastofnunum, sjá nánar á vefsíðu viðeigandi stofnunar.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Því skorar Íbúðaeignir fasteignasala á alla væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og eftir atvikum leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

        - Atvinnueignir eru okkar fag -
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.