Atvinnueign fasteignamiðlun og Halldór Már Sverrisson löggiltur fasteignasali kynnir:Til leigu eða sölu allt að 4.316 fm atvinnuhúsnæði við Grænásbraut (Ásbrú - Reykjanesbæ).
Um er að ræða tvö samliggjandi hús sem geta verið leigð út í sitthvoru lagi en eru eingöngu seld saman.
I) Verslunarrými, 2.061 fm sem m.a gæti hentað mjög vel fyrir matvöruverslun og veitingastaði.
II) Vöruhús/lager 2.255 fm með 9 metra lofthæð þar sem hæst er og fjórum innkeyrsluhurðum.
Lóðin er 31.883 fm sem býður upp á marga möguleika á þessu skemmtilega svæði.
Stórt malbikað útsvæði er við húsið. Vöruhúsið er í útleigu og verslunarrýmið er laust nú þegar.
Allar nánari upplýsingar á utan opnunartíma veitir:Halldór Már Sverrisson, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 898-5599 eða [email protected]Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf, www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag -