Atvinnueign kynnir til leigu 345 fm glæsilegt skrifstofuhúsnæði við Borgartún 25. Mjög vandað og glæsilegt skrifstofuhúsnæði til leigu við Borgartún 25, byggingin er 8 hæðir. Um er að ræða hæð 6 sem er um 760 m2 að stærð. Rýmið sem er laust til leigu er 345 m2, sjá í meðfylgjandi myndum.
Einnig er möguleiki að fá leigðar geymslur í kjallara, allt að 220 m2 að stærð. Góð bílastæði eru til staðar með aðgangsstýrðu hliði og einnig er möguleiki á að fá aðgang að bílastæðum í lokuðu bílastæðahúsi í kjallara hússins.
Húsnæðið er mjög bjart og skemmtilegt, sambland af lokuðum og opnum vinnurýmum ásamt fjölda minni og stærri fundarherbergja. Möguleiki er á að breyta skipulagi hæða á tiltölulega einfaldan og hagkvæman hátt. Aðgengi er útá svalir þar sem hægt er að grilla o.s.frv. Útsýnið er einstakt og engar byggingar fyrir framan sem skerða útsýnið.
Frábær staðsetning í einu helsta viðskiptahverfi Reykjavíkur.
Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir:
Davíð Jens Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma
821 6897,
[email protected]Evert Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í síma
823 3022,
[email protected]Heimasíða ATVINNUEIGN fasteignamiðlunar. - Atvinnueignir eru okkar fag -