Atvinnueign kynnir til sölu eða leigu : Um 800 fm lager- og skrifstofuhúsnæði að Skútuvogi 1D í Reykjavík.
Nánari lýsing:Á jarðhæð er móttaka og stórt lagerrými með góðri lofthæð og stórri innkeyrsluhurð. Þá er á jarðhæð matsalur, opið skrifstofurými og lokuð skrifstofa.
Á efri hæð eru þrjár skrifstofur, gott fundarherbergi, salernisaðstaða og eldhús. Þá er á efri hæð opið rými með lokaðri geymslu inn af því rými.
Gólefni eru dúkur og flísar á neðri hæð en parket á efri hæð.
Góð aðkoma er að húsinu og fjöldi bílastæða. Húsnæðið er vsk húsnæði.
Nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir:
Davíð Jens Guðlaugsson, löggiltur leigumiðlari í síma 821-6897 eða [email protected]
Halldór Már Sverrisson, löggiltur fasteignasali í síma 898 5599 eða [email protected]
Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf, www.atvinnueign.is
- Atvinnueignir eru okkar fag -