Atvinnueign kynnir til leigu: 250 fm. verslunarhúsnæði á jarðhæð við Bíldshöfða, Reykjavík.
Möguleiki er að skipta rýminu í minni stærðir. Mjög góður sýnileiki með gluggafront.
HÖFÐINN er nýleg verslunar- og þjónustumiðstöð miðsvæðis á Bíldshöfða. Í dag er starfrækt heilsugæsla, sjúkraþjálfun, heilsurækt, apótek, sérverslanir og nýlega opnaði mathöll í húsinu. Um 2.000 manns koma í húsið daglega og sækja í hina ýmsu starfsemi. Mikil uppbygging verður á næstu árum á þessu svæði. Næg bílastæði eru við húsið. Laust strax.
Samkvæmt vinningstillögu að rammaskipulagi rís íbúðabyggð fyrir 10–15.000 manns á Ártúnshöfða á næstu árum og liggur Bíldshöfði við fyrirhugað byggingarsvæði.
Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir: Evert Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í síma
823 3022 - [email protected]Heimasíða ATVINNUEIGN fasteignamiðlunar. - Atvinnueignir eru okkar fag -