Atvinnueign kynnir: í einkasölu 834 fm. iðnaðar- og fiskverkunarhús við Staðarsund 6 og 8, byggt árið 1986 og byggt við árið 2019.
Fiskivinnsluhús með fiskmóttöku, vinnslusal, kæligeymslu, kælir/frystigeymslu, skrifstofu, kaffi- og starfsmannaaðstöðu. Leiga á húsnæðinu kemur einnig til greina.Í eigninni er stór vinnslusalur með snyrtilegri klæðningu að stórum hluta, umbúðargeymsla, lyftarageymsla, verkstæði fyrir vinnsluna og um 50 fm. nýlegur kælir/frystir.
Starfsmannarýmið er um 50 fm og skiptist í kaffistofu, búningsherbergi, tvö salerni með sturtum. Þrjár innkeyrsluhurðar eru í fasteigninni.
Nýlegar vatnslagnir fyrir matvælaframleiðslu og nýleg niðurföll. Nýlegar rafmagnstöflur og heimtaug. Nýlegt bárujárn er á þaki hússins.
Lóðin er skráð sem iðnaðar- og athafnarlóð, 1.105 fm að stærð og er malbikað plan við hús nr. 6 og steypt öðrummegin við hús nr. 8.
Húsnæði er laust nú þegar.
Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir:
Halldór Már Sverrisson viðskiptafræðingur, löggiltur fasteignasali og lögg. leigumiðlari í síma 898 5599 eða [email protected] Heimasíða ATVINNUEIGN fasteignamiðlunar.Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Atvinnueign því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
- Atvinnueignir eru okkar fag -